Hjá Sálfræðistofu Suðurnesja sinnir Berglind fjármálaráðgjöf til einstaklinga.
Berglind útskrifaðist sem vottaður fjármálaráðgjafi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2019.
Berglind starfaði hjá Landsbankanum um langt skeið sem fjármálaráðgjafi einstaklinga en þar áður starfaði hún sem ráðgjafi einstaklinga hjá Íslandsbanka frá 2011- 2012 og Kaupþing 2006 – 2009.
Hún hefur mikla reynslu af hvers kyns fjármálaráðgjöf og getur aðstoðað einstaklinga og fjölskyldur að láta ráðstöfunartekjurnar endast lengur og flýta fyrir eignamyndun í fasteignum sínum.