Szukasz psychologa mówiącego po polsku?
Jerzy prowadzi konsultacje psychologiczne w języku polskim.
Więcej informacji po polskuJerzy lauk meistaragráðu í sálfræði með sérhæfingu í klínískri- og réttarsálfræði frá Andrzej Frycz Modrzewski háskólanum í Krakow árið 2015. Hann lauk einnig þriggja ára sérfræðinámi í kerfisbundinni fjölskylduviðhorfum og fjölskyldumeðferð hjá María Orwid stofnuninni í Krakow á árunum 2014-2017. Jerzy fékk leyfi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi í júlí 2025.
Jerzy hefur starfað sem félagsráðgjafi hjá Ráðhúsi Reykjanesbær 2024, þar sem hann sinnti fjárhagslegum úttektum, beinni þjónustu við skjólstæðinga og málastjórn í félags- og húsnæðismálum. Frá 2022-2023 starfaði hann sem stuðningsaðili hjá Reykjavíkurborg þar sem hann veitti heildræna aðstoð við einstaklinga með sérþarfir.
Hann hefur einnig starfað sem sjálfstætt starfandi kennari og leiðbeinandi frá árinu 2021, í samvinnu við Mímir-símenntun, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og KVAN. Þar hefur hann haldið fræðslu- og hvetjandi fyrirlestra um fjölbreytt efni eins og starfsþróun, samskipti á vinnustað, geðheilbrigði og forvarnir gegn streitu og þunglyndi.
Jerzy starfaði sem meðferðarmaður hjá Sálfræðistofnun Krakow 2017-2018, þar sem hann sinnti einstaklings-, fjölskyldu- og hópmeðferð fyrir fullorðna og unglinga. Hann hefur einnig reynslu af vinnu með börnum og unglingum hjá SIEMACHA félaginu 2016-2017.
Jerzy sinnir að mestu fullorðnum og unglingum í starfi sínu. Áherslur í starfi eru meðferð við þunglyndi, kvíða, félagsvanda, streitu, lágu sjálfsmati og málefni tengd aðlögun og fjölmenningarlegu samhengi. Hann vinnur með kerfisbundnum og hugrænum aðferðum.
